Júlía Ósk

eins gott fyrir þig að halda með FH, rugludallurinn þinn!!!

02.10.2008 15:28:21 / julia_12

ATH.:

ATH.: það er komin ný síða síðan er www.juliaosk.bloggar.is ég er hætt með þessa síðu og er farin að nota hina bara..:!:          

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 22:15:40 / julia_12

rugl = pirruð

þessi síða er rugl og ég nenni barasta ekki lengur að vera með hana var búin að blogga fullt og ég útskráðist á meðan að ég var að skrifa og ef ég fæ mér nýja síðu þá læt ég vita á þessari síðu annars held ég kannski áfram með hana sé til hvað ég geri.. blogga allaveganna ekki núna um ferðina kannski seinna:!:

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 22:45:27 / julia_12

ER AÐ FARA TIL ÚTLANDA :)

Jæja farið að styttast í að ég fari til útlanda og vváá hvað ég er orðin spennt ertu ekki að grínast með það?** Allaveganna þá fer ég 29.júní til scotlands og verðum við (ég, fríða og bylgja) þar fyrst í einhvern tímaog svo fer ég og bylgja og fríða til london og verðum þar að hafa zúúperdúúpergaman**. allaveganna þá er ég orðin úperdúperspennt...:haha:... Það er sko engin að fara til bretlands og scotlands nema ég, fríða og bylgja hehe...á þig... allaveganna nenni ekki að blogga meira í bili er ekki í bloggstuði núna:s svo ég blogga bara meira seinna ;)..

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 13:56:49 / julia_12

Bara að láta vita af mér..

8|Jæja þá er komin að mánaðarlegri bloggfærslu þessarar síðu.. Annars er hitt og þetta búið að vera að gerast, eins og td. pabbi fór til grænlands á föstudegi...og ég er að fara til útlanda:D:D:D:D og við ætluðum á akureyri um hvítasunnuhelgina en pabbi fór til grænlands þann föstudag svo við fórum ekki til akureyrar þá helgina en á sunnudeginum fórum ég, mamma, sandra og bergþór upp í sveit og það voru litlir hvolpar þar, kettlingar, hænuungar, lömb, hænur, hanar, kisur, hundar, kindur, hrútar, flugur, fuglar, köngulær og þannig. en allaveganna þá var gaman í sveitinni. og við gistum í bústaðnum hjá afa og ömmu. Svo fórum við heim á mánudeginum. Og á laugardaginn næsta þá var vorhátíð/hverfahátíð víðistaðaskóla(hverfis) og svo þaðan fór ég strax á uppskeruhátíð FH og þar fékk ég verðlaunapening og pizzu og gos. Þegar að það var búið fórum við á keflarvíkurflugvöll að ná í pabba, hann var búin að vera á leiðinni heim frá grænlandi frá miðvikudeginum í vikunni,þá hefði hann farið með bátnum gist einhverstaðar í grænlandi og flaug svo eitthvað og gisti þar og flaug á föstudaginn til danmerkur og honum fannst frekar fúlt að þurfa að fljúga yfir ísland og svo kom hann heim á laugardeginum og svo eru prófin búin hjá mér... en allaveganna er ekki í bloggstuði núna svo nenni ekki að blogganúna meira íbili svo bæj í bili...;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 18:08:39 / julia_12

Allt er þegar þrennt er...

Halló.. já ég var sem sagt að keppa alla helgina en samt bara 6leiki. á laugardaginn kepptum við á móti fram í 5.flokki og gerðum jafntefli 15-15 :lol:en við vorum undir í hálfleik og það var opið á milli klefanna hjá okkur (sami sturtuklefi) og þjálfarinn var svoleiðis brjálaður við þær og hann öskraði svoleiðis á þær, það heyrðum við vel.. svo töpuðum við næsta leik á móti ír :cry: og þá brunaði ég beint úr vodafonehöllinni á strandgötu hafnarfirði að keppa á móti ír með 4.flokki og ég var seinust að mæta af því að ég kom beint úr leik hjá 5.flokki. Þann leik unnum við með stöðuna og þegar lítið var eftir af seinni hálfleik skullu bryndís (með mér í FH) og ein úr ír saman og stelpan í ír fékk heilahristing :s og það kom sjúkrabíll að ná í hana og þjálfarinn var að reyna að láta hana labba en hún var eiginlega meðvitundarlaus og hún hékk bara í jakkanum eða því og datt næstum alltaf bara (að minnsta kosti það sem að ég er búin að heyra frá öðrum, ég var í klefanum). Þá var ég búin að keppa 3 leiki þennan dag, 1tap,1jafntefli og 1sigur svo ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER...En svo á sunnudaginn keppti ég 2 leiki með 5.flokki og við töpuðum þeim báðum:cry: og þá fór bara heim fékk mér smá að borða og fór svo að keppa með 4.flokki og það var jafntefli í hálfleik 11-11 en því miður töpuðum við og lentum því í 2.sæti íslandsmeistaramótsins, einhverjar myndir af FH komu í 24.stundum í gær þriðjudag 22.apríl en samt ekki af mér. Svo á mándudaginn fórum við í 4.flokki út að borða á hróa hetti og fórum svo bara í bíó á einhverja forsýningu því að mamma heiðdísar fékk fullt af miðum eða eitthvað. Og pabbi náði í mig og 6 aðrar stelpur eftir bíóið og bíllinn var sko troðinn. en allaveganna þá fór ég í skólann í gær, þri. og var að drepast allan daginn svo þegar ég kom heim eftir skólann (fyrir utan stærðfræði, í seinasta tíma því það var eyða hjá okkur) lagðist ég undir sæng og lá undir sæng allan daginn, misjafnt hvort það var í rúminu mínu eða á sófanum frammi. En allaveganna þá er ég veik núna með söndru litlu systir. búið að vera gg*dagur:$''eða þannig'' og ég er að drepast héld ég mér líður svo illa. en ég kveð að sinni svo bæjbæj

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 21:15:03 / julia_12

keppakeppakeppa....bros

hæhæ var að keppa á þriðjudaginn með 4.flokk og við vorum yfir í hálfleik 10-6. en á seinustu mínútum seinni hálfleik jöfnuðu þær og komust í 17-16 og svo jöfnuðum við á seinustu sekúndunum, og eins og mamma og fleiri segja þá var þessi leikur ekki fyrir hjartaveika því þetta var gg*spennandi leikur, skemmtilegur og hávaðinn (guð minn góður), en allaveganna þá var framlenging sem var að ég held 2x5mínútur og á fyrri 5 mínútunum komumst við í 18-17 og svo í 19-17 og sú staða hélst þangað til ca.50sekúndur voru eftir af seinni 5mínútum framlengingarinnar og þá fór boltinn í lærið á mér og ég var inná fyrsta hálfleikinn (25mín.) og korter af næsta hálfleik og þá fór Dagný inná og var í 5mínútur. og þá fór ég aftur inná og var seinustu 5mín. leiksins en af því að það var framlenging þá voru það ekki seinustu 5mín. og þá var ég inná næsta hálfleik (5mín) og næsta líka (5mín) öðru nafni allan leikinn nema 5mín. En við unnum semsagt og erum komnar í 4 liða úrslit (undanúrslit) í Íslandsmeistaramótinu og ánægjan hjá okkur af því að við unnum :haha::haha::haha:. En Beggi kom á mánudaginn (daginn fyrir leikinn) og það var svo gaman. En svo fór ég á æfingu á miðvikudaginn en eftir það var mér svo illt í hendinni (það sem að mér er búið að vera svoldið illt í einhvern tíma) að mamma sagði mér að hvíla bara á seinni æfingunni og hún hringdi í möggu þjálfara og sagði að ég ætlaði að hvíla mig fyrir helgina vegna þess að það er mót hjá 5.flokk og 2leikir hjá 4.flokk. Á morgun laugardag er leikur hjá 5.flokk kl. 9:40 í vodafonehöllinni og svo aftur leikur kl.11 og strax eftir þann leik fer ég í Hafnarfjörð á strandgötuna og fer að keppa þar með 4.flokk á móti ÍR og ef við vinnum þær keppum við um 1.sætið á sunnudaginn en ef við töpum þá keppum við um 3.sætið á sunnudaginn. en svo fer ég að keppa á sunnudagsmorgninum og fer kannski beint þaðan eftir seinasta leikinn þar í Hafnarfjörð á ásvelli að keppa um sæti. En allaveganna í dag í skólanum fengum við eyðu í seinustu 2tímunum hjá magga af því að hann var að fara eitthvað og hilmir út af ???.. Það var svo engin æfing í dag hjá hvorugum flokknum af því að hjá 4. er aldrei æfing á föstudögum og hjá 5. af því að b-liðið var að keppa. En allir að mæta á morgun laugardag sem komast að hvetja FH í strandgötu, Hafnarfirði kl. 12:30....FH-ingurinn kveður að sinni og mun skrifa aftur fljótlega að skrifa hvernig gekk þessa helgi.
PS.Áfram FH og  kleppari er góður.... En FH ERU SVO FEITAST LANGLANGLANG o.fv. bestastir...........:haha:
PS||:var að setja nýjar myndir inn það er undir handbolti 2008 og fermingardagurinn, en það komu ekki fullt af myndum sem að ég valdi af því að þær voru of stórar svo það eru fáar innáhvorum flokki en á eftir að bæta við aftur myndum þar seinna... ef ég get að minnsta kosti.......

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 18:38:06 / julia_12

...

hæhæ langt síðan ég hef skrifað ég veit það, það er bara aldrei tími, keppa,æfing,skólinn,læra,æfing,æfing og svo framvegis, þú/þið skiljið þetta alveg, segjum það allaveganna. Ég var semsagt að keppa með 4.flokki um daginn og við unnum og fórum þess vegna taplausar í gegnum deildina og fengum bikar. á þriðjudaginn er ég að fara að keppa með þeim í úrslitunum. Allaveganna þá var árshátíðin í víðistaðaskóla á fimmtudaginn og það var barasta mjög gaman og skaupið var ótrúlega fyndið. Svo í gær voru pabbi og mamma á árshátíð hjá vinnunni hans pabba á hilton hóteli og gistu þar. Allaveganna ætla ég að setja myndir inn fljótlega...

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 23:00:36 / julia_12

14ára og nýfermd..

Já allavegannna þá er ég orðin 14ára og fermd það tókst hjá mér.  Svo fórum við í myndatöku eftir messuna og þá fór ég í smákík til Sigurrósar í fermingarveisluna hennar og svo smá beint yfir til Freyju. En þá fór ég í salinn að gera tilbúið og svo var veislan og það var bara gaman í veislunni og ég vil bara þakka öllum kærlega fyrir mig..:d ég fékk fullt í fermingargjöf td. BRETLANDSFERÐ, skartgripi, pening, mynd, skartgripaskrín, lyklakippu, ferðatösku og fleira og fleira en það seinasta í dag er gleðilegt páskaegg því að í dag er páskadagur...
yfir og út til ykkar,...;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 22:29:21 / julia_12

seinasta færslan...???

neinei þetta er ekki seinasta færslan ætla ég að vona.. en þetta er seinast færslan á meðan að ég er 13ára og ófermd en á morgun á ég 14ára afmæli og er líka fermd í fyrramálið... en allaveganna þá var ég á akureyri um helgina og ég vann og auðvitað hvað annað... RÚST KA.....RÚST.... og svo unnum við Fram á mánudaginn og ég fór í prufugreiðslu á mánudagsmorguninn og svo á þriðjudaginn fór ég í fermingaræfingu en allaveganna þá ætla ég að hættta þessu í bili ég ætla að fara að gera eitthvað áður en að ég fer að sofa vegna þess að ég þarf að vakna snemma á morgun svo bless í bili blogga betur 14ára og nýfermd...:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 21:37:29 / julia_12

14 dagar

jæja þá eru akkúrat 14dagar í að ég fermist og ég á afmæli eftir nákvæmlega 14daga.en allaveganna þá fór ég með Agne, Birnu og Sillu í kringluna í gær og það var gg*gaman hjá okkur. Við fórum í Motor og Agne og Birna voru þvílíkt í mér og Sillu geriði það mátiði þessar gallabuxur og enduðum við með að máta sitthvorar gallabuxurnar, hún rauðar og ég hvítar og Silla ætlar að kaupa sér þannig eftir fermingu en ég ætla ekki að kaupa þessar hvítu þó að Agne hafi ekki verið alveg sátt með mig þegar að ég sagði það hún sagði af hverju ekki þær fara þér svo vel en ég sagði bara nei. Svo var ég að spá í flotta peysu en ég var ekki alveg sátt með ermasíddina og breiddina á peysunni sjálfri. Svo er Bergþór að fara að keppa á laugardaginn og helgina eftir viku er planið allaveganna eins og komið er hjá mér að fara til Akureyrar að keppa og á fimmtudeginum eftir það er komið að sjálfum fermingardeginum. Svo hvort sem að við töpum restinni af leikjunum í deildinni (sem ég vona að sé ekki að fara að gerast) eða ekki þá erum við búnar að vinna deildina og við keppum við liðið sem lendir í 2.sæti í 1.deild a-liða og annað sætið hjá okkur í 2.deild keppa við 1.sætið í 1.deild a-liða og þetta er ábyggilega krossspil eða eitthvað þannig. En allaveganna nenni þessu ekki lengur í bili svo bæj í bili...

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 20:28:42 / julia_12

1.marz 2008

já góðan daginn góðir landsmenn nær og fjær í dag er semsagt 1.marz og ég ætla að segja hvað ég var að gera í dag... Fyrst vaknaði ég og fór fram að borða og eitthvað þannig og síðan fór ég með mömmu í messu og það var alveg rosalega mikið stuð þar. Þá kom pabbi að ná í okkur og skutla Söndru á kóræfingu þar sem að hún var að fara að syngja í seinni messunni í dag.  Og þegar að ég var að fara í messuna þá var ég að opna skápinn í andyrinu og ég hélt að ég heldi í hurðina sem er nær stofunni svo að ég stóð bakvið hina hurðina en ég hélt í hurðina sem að ég stóð bakvið og ég opnaði hurðina sem að ég stóð bakvið og fékk hurðina beint í hausinn:lol:. Eftir messuna fékk mér að borða og fór svo að greiða mömmu, (set myndirnar af því seinna inn, þegar að ég er búin að taka þær af vélinni) og ég sat einhvern veginn fáranlega á henni til að ná að greiða henni og alltíeinu gerðist svoldið MJÖGMIKIÐFYNDIÐ og þetta er ekki beint staðurinn til að segja hvað var svona rosalega fyndið. Eftir það fórum við í bíltúr og fengum okkur ís:haha: og fórum svo að hvaleyravatni (þingvelli, eins og Sandra sagði það) og fórum þaðan eitthvert lengst út í rassgat og keyrðum ''jeppaferð í þessari færð'' og okkur tókst að festa okkur en við vorum að reyna að komast eitthvert upp og það var einhver kall búin að vera að tala við pabba og hann beið bara fyrir aftan okkur og pabbi gaf bara alltí þennan stafl... svo kom ég bara heim og horfði á sjónvarpið með mömmu og borðaði (ég er ekki alltaf að borða)) og fór í tölvuna og skrifaði þetta og pabbi og mamma fóru á eitthvað spilakvöld og þið sem að sáuð spaugstofuna um helgina þá fóru þau í framsóknarvist... en allaveganna nóg í bili 
commenta og skrifa í gestó

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 22:18:10 / julia_12

29.febrúar er töff dagur...munið það

hæhæ í dag er 29.febrúar fyrir þá sem að ekki vissu það. og hann kemur bara á 4.ára fresti svo að fólk nýtið daginn vel... En allaveganna þá styttistogstyttist bara í afmælisfermingardaginn minn sem að er 20.marz (allaveganna seinast þegar að ég vissi) og ég er búin að kaupa eiginlega allt, held ég allaveganna, en það vantar  til dæmis skó og ??. Svo var ég að keppa á miðvikudaginn með 4.flokk á móti fram og við unnum að sjálfsögðu, hvað annað? en svo þegar að ca. 2-3 mínútur voru eftir þá var Fanney að hlaupa á eftir einni stelpunni í hraðaupphlaupi og fékk hælinn á stelpunni í úlniðinn á sér og fór til læknis (held ég allveg pottþétt) og var tognuð en þurfti að fara í gifs til öryggis.
Um seinustu helgi var ég að keppa á móti með 5.flokk og við unnum gullið :d. Svo eftir seinni leikinn á sunnudaginn fór ég til læknis á læknavaktina í  Kópavoginum og læknakonan sprautaði deyfilyfi beint í sárið og það var ógeðslega vont.. og svo skar hún smá í það og þá kom smá glerbrot út.
En allaveganna þá var ég byrjuð að skrifa þessa færslu þann 29.febrúar en þá kom Freyja og ég vistaði bara færsluna og er að klára hana í dag 1.marz en allaveganna þá nenni ég þessu ekki meir í bili svo bless í bili   .   :$  

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 19:31:38 / julia_12

Sjóveikastelpan (ekki lengur samt)))

sælt veri fólkið. seinasta fimmtudag var grunnskólahátíðin, sem er fyrir alla grunnskóla í Hafnarfirði (samt bara 8,9,10. bekk) og það var gg*mikið stuð.
Svo á laugardaginn fór ég til Vestmannaeyja og það var alveg ROSA ''gaman'' í Herjólfi þá. Ég ældi bara nokkuð oft en náði samt að sofna seinasta 1-11/2 tímann og vaknaði þá en var samt enn smá sjóveik. við kepptum svo einn leik á laugardeginum og unnum hann 30-23 :d. Svo var kvöldvaka um kvöldið, rosa skemmtileg, þar voru skemmtiatriði og eitthvað fleira, við horðum á mynd eftir leikinn og við ætluðum í sund en það var búið að loka og þetta var um 6. Svo um 19:30 eða 20:00 eða eitthvað þannig áttum við pantað pizzuhlaðborð á cafe Maria. En allaveganna það var rosagaman á kvöldvökunni. Við fórum að sofa, vöknuðum um morguninn og fengum okkur að borða og gengum frá dótinu okkar. Svo fórum við að keppa og unnum hann 2? (tuttuguogeitthvað - eitthvað) man ekki stöðuna í augnablikinu. Eftir leikinn
fórum við svo í sund og það var gaman. Þar hitti ég vinkonur mínar sem að búa í eyjum. Og ég er rosalega stollt af mér ég varði 2víti í sömu sókninni, ég er líka bezt. Allaveganna þá labbaði ég, Snædís og Dagný upp í skátaheimili eftir sundið og það var enginn þar og þar með læst :whut:. Við biðum fyrir utan hurðina þangað til að allir komu sem að voru um kannski 10 mín. hef samt ekki hugmynd giska bara. En allaveganna á meðan að við biðum ákvað ég bara að hringja í Camillu þar sem að hún átti afmæli og auðvitað óska ég henni bara til hamingju með það. Svo komumst við fengum að borða og fórum í Herjólf, ''jeiiii''. Allaveganna var ég með einhver sjóveikisarmbönd sem að mamma keypti fyrir mig og ef að þú vilt eignast þannig skaltu fara í apótekið í Fjarðarkaup, hún segist allaveganna hafa keypt þau þar. Og ég sofnaði ca. 15mín. eftir að við fórum af stað og svaf til kannski ca. 17:40 og vaknaði þá og lá kyrr þangað til að við komum heim og ég held ég hafi annaðhvort EKKERT hreyft mig í Herjólfi á sunnudeginum eða bara PÍNUPONSULÍTIÐ. En allaveganna svo er mót hjá mér um helgina og frí hjá mér í skólanum á föstudaginn og líka söndru og bergþóri og um helgina er ég í a-liði og þarf að mæta kl. 08:15 á laugardaginn í Mosfellsbæ. En tíminn er samt skárri á sunnudaginn og þá er það ekki fyrr en kl. eitthvað um 11:25. En allaveganna nenni ég þessu ekki lengur í bili svo segjum þetta nóg í bili og ég ætla að fara að reyna að vera duglegri að blogga á þessa síðu, svo segjum bara bless í bili :haha:

Júlía Ósk

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 23:07:32 / julia_12

Mikið að gera hjá mér

hæhæ, það er búið að vera allt á fullu hjá mér undanfarið. Það var mót hjá mér um eina helgina og ég lenti í 4.sæti, svo voru prófin hjá mér í janúar og ég fékk svona alveg skítsæmilegar einkunnir. Svo er ég náttúrulega alltaf á æfingu og eitthvað þess háttar eins og að keppa. Það er yfirleitt allaveganna 1 leikur á viku, en samt ekki alltaf held ég. Ég var að keppa bikarleik á móti Gróttu fyrir 1-2 vikum og þetta var ábyggilega versti leikurinn minn í marki frá því að ég byrjaði í marki. Svo átti ég að fara til Vestmannaeyja um seinustu helgi á laugardeginum með Herjólfi en Herjólfur fór ekkert þann dag og kvöldið áður (föstudagskvöldið) fékk ég þess vegna að gista með 6 öðrum vinkonum mínum útaf því að þjálfarinn sagði að veðurspáin væri svo léleg að við færum ekkert og hún sagði að það væri spáð ÓGEÐSLEGU veðri og að það væri verra veður en seinast þegar að ég fór til eyja (ég hélt liggur við að það væri nú ekki hægt). En ég fer til eyja á morgun.
Í dag splæsti stærðfræðikennarinn minn ís á bekkinn :d og hann keypti ca.  5 lítra fyrir allan bekkinn (alla sem voru í skólanum) og við vorum 7 stelpur með 2 lítra og við vorum ekki beint lengi að klára það og einum strákahópnum gekk ekki eins vel og stærðfræðikennarinn kom og sagði að við hefðum sko ekki litla íslist og hann tók ísinn frá strákunum og spurði hvort að við gætum líka klárað þennan og við fengum okkur allar 1 skeið og strákarnir fóru þá í fýlu og sögðust hafa ætlað að borða meira af þessu en við værum búnar að eitra ísinn svo að þeir vildu ekki meira. Þeir sögðu að við hefðum borðað um 5cm af ísnum sem að var svolítið mjög mikið ýkt.
Svo er ég búin að vera í einhverjum búðum með mömmu að kaupa eitthvað fyrir ferminguna mína sem að verður 20.marz 2008 og í gær var ég að kaupa kjól og þetta er svona bleikur kjóll og bleikar ermar, hvítar leggings og einhvern hvítan jakka. En allaveganna þá ætla ég að fara að gera eitthvað annað núna. 
skrifa aftur seinna 
Júlía

PS. ég held að síðan heiti núna það sama nema julia_12 verður julia-12 en ég held en er ekki viss um að það sé sama hvort maðu skrifar _ eða -.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 23:28:17 / julia_12

Tékkið endilega á þessu

Allir að kíkja á þar sem að stendur allir að kíkja þið verðið að sjá þessi myndbönd...

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
FH-ingurinn hún Júlía
dökkhærð, hávaxinn, bestust, sætust, FH-ingur og spurðu bara..
RSS tengill
Textabox
bara prófa eitthvað
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 20005
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1319 dögum
ég fer til útlanda...:)
Könnun
Hvað á að gera í sumar
vinna
0 atkvæði

fara til útlanda
0 atkvæði

ferðast innanlands
0 atkvæði

bara vera heima
0 atkvæði

ferðast innanlands og utanlands
0 atkvæði

ekkert ákveðið
0 atkvæði

kemur í ljós..
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 1